Ný færsla!Ágústa Ósk
Ciao!Hérna kemur það sem ég er búin að vera að bralla undanfarna daga
Laugardagurinn fór í það að skella sér til ancona!. Við vöknuðum mjööög þreyttar um hádegi eftir djamm á föstudagskvöldinu og þegar ég var nýsest við morgunverðar/hádegismatarborðið þá hringdu ester og þóra í okkur og sögðust vera búnar að kaupa lestarmiða fyrir okkur til ancona og við þyrftum að vera mættar eftir korter ef við ætluðum að ná lestinni! :S
Þegar við komum loksins til ancona tók á móti okkur þessi ógeðslega borg. Það sem við sáum af henni var hræðilegt. Hún var ljót og skítug og í raun ekkert sérstakt við hana. Við hjarta okkar gladdist mjög þegar við loksins fundum Zöru búð og versluðum við smá :S í henni.
Á leiðinni heim þurftum við að taka lest til á einhvern stað sem ég man ekki hvað heitir og taka síðan rútu þaðan til Castelraimondo. Allt í lagi, við héldum nú að við réðum við það verkefni en.....nei!Það var komið að stoppinu þar sem við áttum að fara út og setjast upp í rútu en þegar við vorum komnar að hurðinni opnaðist hún ekki (áttum að ýta á takka en vissum það ekki :S) og lestin fór bara af stað aftur :S við vissum ekki hvað við áttum að gera þannig að við hlupum í gegnum lestina og töluðum við gæjann sem klippir á miðann og hann hlustaði varla á okkur og sagði að þetta væri bara okkur að kenna og við yrðum bara að fara lengra og redda okkur! Það eina sem komst í gegnum huga minn var “ég á eftir að sofa úti í alla nótt”.
Við ákváðum því að setjast aftur og fara út á næstu stoppustöð og finna hótel. En sem betur fer þegar við komum út var stelpa að fara út á þessum ókunna stað svo við spurðum hana hvort hún vissi hvort einhver rúta færi frá þessum stað til castelraimondo og svo framveigis. Hún sagði að hún væri líka á leiðinni þangað og hefði verið í skólanum sem við erum í í maí. Hún sagði að rútan sem við áttum miða í kæmi í þennan bæ og hún væri líka að fara að taka hana svo við gætum bara verið samferða henni.
Vááááááááá!!!!!!!!!!! Okkur var svo létt, við þurftum ekki að sofa úti í nótt. Við byrjuðum að spjalla við hana og töluðum við hana alla leið til castelraimondo, við vorum komnar upp í skóla um hálf eitt leitið og reyndum að koma okkur upp í rúm sem fyrst því við þurftum að vakna kl. 5 daginn eftir því við vorum að fara að taka rútu til Flórens daginn eftir.
Sunnudagur inn fór í flórensferð, þetta er svo flott borg að það er ekki eðlilegt!Við stoppuðum á nokkrum svona túristastöðum eins og við Davíðsstyttuna og svona. Síðan var haldið niður í miðbæ og ákváðum við stelpurnar að forða okkur frá skólahópnum og skoða sjálfar. Við skoðuðum dómkirkjuna þarna og fórum á útimarkað, fylgdumst með mönnum hlaupa undan lögreglunni vegna sölu á fölsuðum varnigni og fl.
Á mánudaginn síðasta var gert frekar lítið nema fara í skólann og borða með stelpunum og Einari. Fékk mína fyrstu almennilegu kjötmáltíð síðan ég kom til ítlaíu. Mmmmmm gott!
Þriðjudagurinn fór í það að fara í skólann, þvo þvott, skoða kastala hérna rétt hjá og svona ýmislegt.
Í gær fórum við á ströndina fyrir hádegi og létum við sólina baða okkur, var svolítið erfitt fyrst þar sem það var skýjað næstum allan tímann en ég fékk nú samt smá lit svo þetta er allt í lagi. Síðan fengum við okkur stelpurnar nudd og slökuðum við allveg á.
Síðan tók skólinn við eftir hádegi og svo matarboð með stelpunum þegar skólinn var búinn ![]()
Í dag fór ég í skólann og síðan er ég bara búin að sofa mest allan daginn, leið eitthvað ekki vel. Ég og Auður ætlum nú samt að fara út að borða tvær á eftir þannig að ég gerði nú eitthvað í dag. ![]()
Ciao,
Ágústa
Jæjja kominn föstudagur!Ágústa Ósk
Ciao!Allt rosalega gott að frétta héðan frá ítlaíu. Veðrið er að verða gott og rigningardögunum fækkar. Ég bíð spennt eftir sólinni hérna!
Í GÆR fór ég í skólann klukkan níu og var til eitt. Skóladagurinn var allveg ótrúlega lengi að líða, ég upplifði mínar lengstu fimm mínútur.
Eftir skólann var afslöppunin tekin á þetta! ég lærði heima og lagði mig. Fjóla og Hugrún skelltu sér í mat til okkar og voru eldaðir fjórir pastaréttir. Við borðuðum á okkur gat og skelltum okkur upp á þriðju hæð í partý en ég entist ekki þar lengi. Ég og Hugrún fórum bara aftur niður að læra.
Í DAG var auðvitað bara skólinn og svo um hálf tólf var skellt sér á útimarkað í Castelraimondo og keypti ég mér það eitt skópar og tvo hlýraboli. Í kvöld ætlum við Auður, Fjóla og Hugrún að skella okkur út að borða á pizza stað niðrí bæ þar sem auður vann út að borða fyrir tvo í einhverju bingó sem hún fór í í tíma.
Á MORGUN er ekkert planað þar sem íslendingarnir fara ekki í skólaferðiina. Það á að fara til San Marino en við förum þangað á 17 júní. Við stelpurnar vorum að hugsa um að skella okkur til Ancona og þar ætla ég að fjárfesta í einni góðri ferðatösku.
A presto!
Ágústa
Ágústa
Ciao tutti!Ágústa Ósk
Ciao! Já hæjj, hvernig byrjar maður svona færslu eiginlega??Allavega!
- Dagur eitt - Ferðalagið til ítalíu.
Já fyrsti dagurinn fór í það að ferðast í flugvélum og svona.
Pabbi skutlaði okkur Auði út á flugvöll og vorum við komnar á góðum tíma. Við byrjuðum á því að tjékka okkur inn og fá okkur svo morgunmat. Við dunduðum okkur í fríhöfninni og vorum ekkert að flýta okkur. Við ákváðum að kíkja á skjáinn til að fá upplýsingar um flugið okkar en þá sáum við að það var final call og við hlupum eins og ég veit ekki hvað í gegnum alla flugstöðina til að ná fluginu sem við svo gerðum.
Þegar við komum komum til london þurftum við að fara í gegnum vegabréfatjékk eins og allir aðrir nema það að maðurinn sem var að tjékka á mínu vegabréfi byrjaði að spurja mig hvaðan ég væri að koma og þegar ég sagði honum að ég væri frá íslandi spurði hann mig mjög áhugasamaur um suðurlandsskjálftann. Mér brá svo að ég átti erfitt með að tala....hikstaði í gegnum setninguna, “yes, we had an earth quake, yes it was very terrible and a lot of houses are broken” Síðan hélt ég áfram að færibandinu með töskurnar rauð í framan af feimni.
Við Auður eyddum miklum tíma í fríhöfninni meðal annars í apótekinu! Hljómar illa ég veit en það fékkst bara svo margt þar! Við smökkuðum bestu samlokur í heimi! Og náðum að versla okkur fullt að mjööög svo ódýrum eyrnalokkum, flip flops og tímaritum.
Þegar við komum til Róm beið Jóhanna fyrir utan flugstöðina og tók á móti okkur.
Við skutluðumst upp á hótel og skelltum við okkur síðan út að borða, ég, Auður, Hjalti og Einar. Við leituðum að opnum veitingastað í svolítiinn tíma og loksins fundum við veitingastaðinn la gallina bianca eða hvítu hænuna. Við fengum okkur pizzur og ákváðum síðan að fara á írska pubbinn í hverfinu. Og var fenginn sér einn bjór.
Þegar við vorum á leiðinni aftur upp á hótel ákváðum við að kaupa okkur freyðivín og spjalla sem var svo gert uppá hótelherbergi. Síðan var farið að sofa.
- Dagur tvö – Dagur í Róm.
Við vöknuðum og skiluðum af okkur herbergjunum. Við drifum okkur upp á lestarstöð þar sem Jóhann beið eftir hópnum til að sýna okkur Róm. Við byrjuðum á því að skoða ýmsa gosbrunna og svona týpíska túrista staði. Síðan fórum við inn í eldri hluta bæjarins og skoðuðum hringleikahúsið og svona (reyndar bara að utan en OK).
Þegar Jóhanna var búin með sinn túr þá höfðum við slatta tíma svo við, ég, Auður, Einar og Hjalti ákváðum að skella okkur út að borða á stað þar sem maður borðaði við garðborð á garðstólum útá bílastæði og svo Vatikanið og skoða þar. Ég og Auður keyptum okkur sitthvort talnabandið og tókum nokkrar myndir.
Síðan var ferðinni heitið uppá hótel til að ná í töskurnar og skella sér upp á lestarstöð þar sem Jóhann beið einu sinni enn eftir okkur og fórum við upp í rútu og lögðum af stað til Castelraimondo.
Við komum um tvö leytið og var tekið á móti okkur og við fengum lykla af íbúðunum okkar og tókum upp úr töskunum og fórum að sofa.
- Dagur þrjú – Stöðupróf og þrumur.
Já dagur þrjú byrjaði á því að flestir tóku stöðupróf en þar sem ég kann enga ítlölsku what so ever þá þurfti ég ekki að taka stöðupróf en fékk útskýringar á skólanum í staðinn.
Eftir þetta var ekkert að gera nema skella sér í bæinn og finna ísbúð og súpermarkað og auðvitað skoða bæinn. Við nokkrir krakkar skelltum okkur í bæinn og fundum margt skemmtilegt.
Við fórum í ísbúð og afgreiðslukonan vissi greinilega að við vorum í skólanum þar sem hún lét okkur góðlátlega ekki komast upp með það að tala ensku heldur urðum við að tala ítölsku.
Síðan skelltum við okkur í búðina og keyptum svona basic vörur eins og sápu, brauð, álegg, mjólk og pasta. Þegar við stigum út úr búðinni byrjuðu þrumur á fullu og svo kom rigningin og hún kom vaxandi þar sem við viltumst og rigningin varð ennþá meiri og við komum loksins upp í skóla aftur rennandi blaut frá toppi til táa. Fólk hló að okkur þegar það sá okkur svona rennandi blaut en sem betur fer var okkur ekki kalt.
Rétt eftir fimm fórum við í súpermarkaðinn sem er hérna rétt hjá skólanum og versluðum meiri mat eins og mozzarella ost, tómata og basil. Í þessum súpermarkaði fæst allt á milli himins og jarðar og getur maður skoðað þarna endalaust.
Klukkan hálf sjö um kvöldið var haldið kokteilboð og tók maður þá eftir því hversu áberandi eldra fólk var í skólanum, líklegast 2/3 af nemendum skólans var gamalt fólk frá Argentínu.
Ég og Auður nenntum ekki að hanga þarna lengi svo við fórum bara heim og elduðum okkur pasta.
Um kvöldið ætluðu allir að skella sér á local barinn en við vorum þar í 10 mínútur og fórum síðan bara aftur upp á herbergi og spjölluðum við stelpurnar í íbúðinni við hliðina á og stelpurnar sem eru með okkur í íbúð.
Síðan tók hörkuspjall á milli mín og Auðar við og svo var farið að sofa, kanski aðeins of seint.
- Dagur fjögur – fyrsti tíminn og Camerino.
Já í dag var fyrsti tíminn og lærði ég margt. Ég er með slatta af íslendingum í tíma og þar á meðal Fanney, MAMMA!.
Það var mjög gaman í tíma fyrir og er þetta ennþá allavega mjög skemmtilegt og einfalt tungumál og það er mjög gaman að geta allavega sagt eitthvað á ítölsku.
Tíminn var frá níu í morgun til eitt og klukkan hálf fjögur var farið í Camerino, háskólabæinn. Rosalega fallegur bær en ég nennti nú ekki að vera þarna svo lengi, við settumst á kaffihús og spjölluðum bara saman og svona og svo var komið heim og byrjað á því að fá sér netið í tölvuna og svara öllum e-mailum og svona.
Það er æðislegt hérna, maturinn, veðrið, menningin og allt saman, mann langar varla að koma heim!
Núna er ég bara sitjandi á rúminu mínu að skrifa þessa færslu og hlusta á Eurovision lög.
Ég sakna ykkar allra! Og vona ég að þið hafið skemmt ykkur vel við að lesa þessu löööööngu færslu.
Ciao!
- Ágústa Ósk
- Ágústa Ósk